Islaendisch PDF Drucken E-Mail
Ævintýralegur búgarður fyrir börn og unglinga: Kolle 37

Verkefni rekið af Netzwerk Spiel/Kultur Prenzlauer Berg e.V.


Búgarðurinn var opnaður árið 1990 og húsið var byggt árið 1999. Á hverjum degi tekur búgarðurinn á móti 30 til 100 stelpum og strákum á aldrinum 6 til 16 ára.
Hér geta börnin byggt sér kofa, kveikt eld, unnið garðyrkjustörf, fylgst með dýrunum hvort heldur sem er að annast þau eða einfaldlega leika sér við þau. Hér eru í gangi margvísleg verkefni þar sem þau geta látið sköpunargáfu sína njóta sín um leið og þau læra að fara með ýmis efni og verkfæri. Í þessum tilgangi búum við yfir aðstöðu fyrir keramíkvinnu, smíðaverkstæðis, föndurstofu, járnsmiðju og aðstöðu til tónlistariðkunar.
Búgarðurinn stendur á um það bil 4000 fermetra landareign. Hér vinna 4 kennaramenntaðir starfsmenn auk annarra starfsmanna. Pankow hverfið í Berlín stendur straum af starfsmannakostnaði og hluta af rekstrarkostnaði búgarðsins. Heimsókn á búgarðinn er ókeypis, að undanskildum sértilboðum svo sem dagsferðum, gistingu o.fl.
Opnunartími virka daga er frá kl. 13:30 til 19:00 og á laugardögum er opið frá kl. 13:00 til 18:00. Á morgnana stendur aðstaða búgarðsins til boða fyrir hópa skólabarna jafnt sem leikskólabarna. Á landareigninni er jafnframt leikskóli með 18 vistunarplássum. Á kvöldin er húsnæðið notað undir menningar- og stjórnmálastarfsemi.